Get all 28 FALK releases available on Bandcamp and save 60%.
Includes unlimited streaming via the free Bandcamp app, plus high-quality downloads of Left Hand Path, All the Ghosts Are Gone, Beyondaries, Demon Core, Tschüssi, Radiance, Jammið, Ecstatic Half Truth, and 20 more.
1. |
Hatrið Göfgar Manninn
12:18
|
|||
Hatrið göfgar manninn
Allt hefst með örlítilli gremju
sem lofað er að grassera
þar til hún verður að pirring,
sem beinist í allar áttir
en mest inn á við.
Hatrið göfgar manninn.
Loks vex hann úr grasi
og verður að reiði.
Óþreyjufull leit að farveg
ber engan árangur.
Hatrið göfgar manninn.
Að lokum glundrar þú
henni úr höndunum
og reiðin verður að hatri
sem brennur þér í brjósti!
Faðmaðu það að þér
og lof því að taka yfir.
Lát það fylla þig eldmóð
og hvetja þig til verka
sem annars hefðu alltaf
látið óátalin.
Hatrið göfgar manninn.
|
||||
2. |
||||
Megir þú sökkva í myrkan sæ, bölvaða sker
Allt frá örófi alda,
er jörðin skeit þér úr sér
hefur þú aldrei verið
neinum til góðs.
Á þér liggur sú bölvun
að allt sem þar þrífst
er þróttlaust
og að þrotum komið.
Þrátt fyrir stórbrotna náttúru
og sífelldar hótanir
um náttúruhamfarir,
verður aldrei neitt úr neinu.
Orðin eru innantóm
svo ei er að furða þótt allt sé andlaust.
Megir þú sökkva í myrkan sæ, bölvaða sker
og aldrei líta aftur dagsins ljós!
Öldur skulu berja þig niður
og mala þig mélinu smærra!
Mannana börn öll þér gleyma,
að engu verður í aldanna rás!
|
||||
3. |
Trúin á Moldina
10:29
|
|||
4. |
||||
Berið eld að holdi yðar, og þér verðið frjáls
Þér berið óteljandi bönd
sem halda yður föstum höndum.
Ber þar að nefna
hina ýmsu hlekki hugarfarsins
er halda yður í blekkingu.
Verstir eru þó þeir
sem úr vefjum, sinum og beinum eru.
Aftra þeir öllu,
en lausn er þó sjónmáli.
Berið eld að holdi yðar, og þér verðið frjáls.
Lof logum að leika um líkama yðar,
lát hitann brenna húð yðar
og fnyk af sviðnum hárum
fylla vit yðar!
Berið eld að holdi yðar, og þér verðið frjáls.
Sársaukinn er aðeins tímabundinn,
tilgangurinn helgar meðalið.
Að lokum munuð þér öðlast
fullkomið frelsi.
Berið eld að holdi yðar, og þér verðið frjáls!
|
FALK Reykjavik, Iceland
FALK - Fuck Art Let's Kill is the name of our combined interest in what we think is important in some vague way. We make something and release it to fend for it self. To kill or be killed. Such is the way of the FALK.
Streaming and Download help
If you like Svartagallsraus & Dómadagssöngvar, you may also like:
Bandcamp Daily your guide to the world of Bandcamp